Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. júlí 2017 07:15
Hafliði Breiðfjörð
EM kvenna
Færðu Þorvaldi súkkulaði að gjöf
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorvaldur Ingimundarson starfsmaður KSÍ fékk þakklætisgjöf frá Sviss fyrir æfingu íslenska liðsins í Hollandi í dag.

Hann hafði verið einkar liðlegur við þá svissnesku í klukktíma símtali þar sem farið var yfir framburð íslensku nafnanna og fleira.

Í staðinn fékk hann svo gæða súkkulaði að gjöf frá svissneskri sjónvarpskonu.

Á myndinni sýnir hann gjöfina góðu.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner