Argentínumaðurinn Javier Mascherano vonast til þess að Neymar haldi tryggð við Barcelona og verði um kyrrt.
Í Powerade-slúðrinu í morgun kom fram að Neymar hafi sagt liðsfélögum sínum hjá Barcelona að hann væri á leið til franska félagsins Paris Saint-Germain.
PSG er víst tilbúið að borga riftunarverðið í samningi Neymar, rúmar 200 milljónir punda. Neymar yrði þá langdýrastur í sögunni.

Mascherano trúir þessum sögusögnum ekki. Hann telur að Neymar sé mjög ánægður hjá Barcelona og verði vonandi áfram.
„Það er mjög erfitt að gefa honum ráð. Ég er ekki einhver sem á að gefa honum ráð, en ég veit að hann er mjög ánægður hér, mjög ánægður," sagði Mascherano við ESPN.
„Hann er mjög mikilvægur fyrir félagið. Hann er framtíð félagsins og vonandi getum við haldið áfram að reiða á hann."
Athugasemdir