Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. júlí 2017 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Nottingham Forest kaupir Daryl Murphy (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur gengið frá kaupunum á írska framherjanum Daryl Murphy frá Newcastle.

Kaupverðið er talið vera í kringum 2 milljónir punda, Murphy skrifaði undir samning til þriggja ára.

„Það er frábært að hafa loksins skrifað undir og vera kominn hingað og að hitta alla. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessum félagsskiptum og vonandi get ég verið hluti af einhverju sérstöku," sagði Murphy eftir undirskriftina.

Daryl Murphy sem kom frá Ipswich Town til Newcastle í ágúst síðastliðnum skoraði 5 mörk í 14 leikjum á síðasta tímabili.

Britt Assombalonga fór frá Nottingham Forest til Middlesbrough á dögunum og Daryl Murphy er því líklega ætlað að koma í hans stað.



Athugasemdir
banner
banner
banner