Í gegnum árin hefur Þýskaland verið talið eitt sterkasta lið Evrópu og jafnvel heims og hefur svo sannarlega sýnt það á seinustu Evrópumótum.
Árið 1984 hófst fyrsta Evrópumót kvenna í knattspyrnu og á því móti sigruðu Svíar England í úrslitaleik. Á því næsta fer Noregur með sigur af hólmi eftir sigur á Svíum í úrslitum.
Næstu tvær Evrópukeppnir vinna síðan Þjóðverjar en á mótinu eftir það árið 1993 tekst Noregi að sigra í annað sinn.
Síðan þá hefur Þýskaland unnið öll Evrópumótin sem haldin hafa verið eða sex í heildina og samtals átta sinnum orðið Evrópumeistarar.
Þýskaland er efst af öllum Evrópuþjóðunum samkvæmt nýjasta FIFA listanum í 2. sæti á eftir Bandaríkjunum sem sitja í 1. sæti.
Athugasemdir