Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 22. ágúst 2014 22:35
Grímur Már Þórólfsson
Atletico Madrid tók Ofurbikarinn
Mandzukic og Varane í baráttu í leiknum í kvöld
Mandzukic og Varane í baráttu í leiknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 1-0 Real Madrid
1-0 Mandzukic (´2)

Leik Atletico Madrid og Real Madrid í Ofurbikarnum var að ljúka. Leiknum lauk með 1-0 sigri Atletico Madrid.

Eina mark leiksins skoraði Mario Mandzukic í sínum fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa komið frá Bayern Munchen í sumar. Markið kom á 2. mínútu og urðu mörkin ekki fleiri.

Christiano Ronaldo byrjaði á bekknum en kom inná í hálfleik fyrir Toni Kroos. Honum tókst þó ekki að finna netið frekar en aðrir leikmenn Real Madrid.

Real Madrid var töluvert meira með boltann en tókst þó ekki að jafna leikinn.

Á 95. mínútu var svo Luka Modric rekinn útaf með sitt annað gula spjald.
Athugasemdir
banner
banner