Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. ágúst 2014 11:08
Magnús Már Einarsson
Balotelli á leið í læknisskoðun hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli mun fljúga til Englands í dag til að fara í læknisskoðun hjá Liverpool.

Mino Raiola, umboðsmaður leikmannsins, er búinn að funda með Liverpool og ná samningi við félagið.

Raiola birti í dag mynd á Instagram af Liverpool treyju númer 45 sem var merkt Balotelli.

Liverpool mun borga AC Milan 16 milljónir punda fyrir Balotelli.

Afar ólíklegt er að Balotelli nái að fá leikheimild fyrir leikinn gegn Manchester City á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner