Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 22. ágúst 2014 10:17
Magnús Már Einarsson
Balotelli ekki til Liverpool fyrir leikinn gegn Manchester City
Mynd: Getty Images
Liverpool mun ekki ná að fá Mario Balotelli í sínar raðir í tæka tíð fyrir leikinn gegn Manchester City á mánudag.

Balotelli er á leið til Liverpool frá AC Milan á 16 milljónir punda ef ekkert óvænt kemur upp á.

Umboðsmaður Balotelli er á Englandi að ganga frá samningum en talið er að Balotelli muni fá meira en 120 þúsund pund í vikulaun.

Eftir að samningar verða í höfn mun Balotelli fara til Englands í læknisskoðun og skrifa undir hjá Liverpool.

Ekkert verður hins vegar af því að hann mæti sínum gömlu félögum í Manchester City á mánudag því félagaskiptin ná ekki í gegn fyrir þann tíma.
Athugasemdir
banner
banner