Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 22. ágúst 2014 13:31
Elvar Geir Magnússon
Redknapp búinn að bjóða Gascoigne vinnu
Þvílíkur toppmaður Harry Redknapp.
Þvílíkur toppmaður Harry Redknapp.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp hefur boðið Paul Gascoigne tækifæri til að vinna hjá QPR við þjálfun hjá unglingaliðum félagsins.

Gascoigne er á sjúkrahúsi eftir að hann fannst dauðadrukkinn fyrir utan heimili sitt. Þessi fyrrum landsliðsmaður Englands er að berjast við Bakkus.

„Ég hef boðið honum að sækja hann á hverjum morgni og vinna með ungum leikmönnum félagsins. Það væri frábært ef hann er til í þetta. Hann er frábær félagi og það er leiðinlegt að sjá hvað hefur gerst fyrir hann og hvernig hann lítur út núna," segir Redknapp.

„Hann er með hjarta úr gulli. Allir hafa reynt að hjálpa honum en sá eini sem getur hjálpað honum núna er hann sjálfur."
Athugasemdir
banner
banner
banner