banner
   fös 22. ágúst 2014 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Santiago Gentiletti til Lazio (Staðfest)
Santiago Gentiletti er kominn til Lazio.
Santiago Gentiletti er kominn til Lazio.
Mynd: Google
29 ára gamli miðvörðurinn Santiago Gentiletti er kominn til Lazio frá argentínska stórliðinu San Lorenzo sem vann Suður-Ameríkubikarinn á síðasta tímabili.

Gentiletti er einnig með ítalskan ríkisborgararétt og segja fjölmiðlar þar í landi að hann gæti gert tilkall til landsliðssæti hjá Ítölum standi hann sig vel með Lazio.

Gentiletti hefur leikið eitt tímabil í Evrópu, þá var hann í liði Brest sem endaði í 15. sæti frönsku deildarinnar tímabilið 2011-12.

Argentínumaðurinn mun þurfa að berjast við Stefan de Vrij, Michäel Ciani og Lorik Cana um byrjunarliðssæti hjá ítalska félaginu sem endaði í 9. sæti efstu deildar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner