Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 22. ágúst 2014 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham þarf að borga 8 milljónir fyrir Fazio
Fazio og félagar héldu hreinu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Benfica.
Fazio og félagar héldu hreinu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Benfica.
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur áhuga á Federico Fazio, miðverði Sevilla, en hefur verið gert ljóst að félagið þarf að borga 8 milljónir punda til að fá leikmanninn.

Samningsákvæði segir að Fazio sé falur fyrir 8 milljónir, en þessi leikmaður er 195cm á hæð og á tvo landsleiki að baki fyrir Argentínu.

Líklegt er að Fazio verði kominn til Tottenham fyrir helgina þar sem félaginu vantar varnarmann eftir að tilraunir til að kaupa Mateo Musacchio, miðvörð Villarreal, runnu út í sandinn.

Fazio er 27 ára gamall og á hátt upp í 200 leiki að baki fyrir Sevilla frá árinu 2007.
Athugasemdir
banner
banner
banner