Hinn 17 ára gamli Aron Dagur Heiðarsson lék sinn fyrsta leik í Pepsi deild karla þegar hann kom inná í tapi Þróttar gegn Val á Þróttarvelli í kvöld.
Aron Dagur er sonur fyrrum landsliðshetjunnar Heiðars Helgusonar sem átti glæsilegan feril en hann sló einmitt fyrst í gegn með Þrótti áður en hann hélt í atvinnumennsku þar sem hann lék með Lilleström, Watford, Fulham, Bolton, QPR og Cardiff.
Heiðar lék einnig 55 A-landsleiki og skoraði í þeim tólf mörk.
Þetta var þó ekki fyrsti leikur Arons Dags fyrir meistaraflokk Þróttar því hann kom við sögu í bikarleik gegn Völsungi fyrr í sumar.
Smelltu hér til að skoða leikskýrslu úr leiknum
Athugasemdir