,,Við náðum markmiðum okkar og það var frábært," sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 3-0 sigri á Aftureldingu í 17. umferð í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 0 Afturelding
,,Fyrri hálfleikurinn í kvöld var hrikalegur, en Afturelding spilaði líka vel og lokaði því sem átti að loka. Við vorum bara á tánum."
,,Það má hrósa þeim, en við komum í seinni hálfleik og náðum ágætisspili, þetta var ekki frábær leikur en við unnum hann samt."
Nánar má sjá viðtalið í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir