Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 22. september 2014 14:58
Magnús Már Einarsson
Cambiasso faldi sig fyrir fótboltaæfingar
Cambiasso fagnar marki í sigri Leicester á Manchester United.
Cambiasso fagnar marki í sigri Leicester á Manchester United.
Mynd: Getty Images
Esteban Cambiasso hefur komið sterkur inn í lið Leicester í síðustu leikjum en þessi magnaði Argentínumaður samdi óvænt við félagið í síðasta mánuði.

Cambiasso er 34 ára gamall en litlu munaði að ekkert yrði úr fótboltaferli hans. Ástæðan er sú að Cambiasso var meira fyrir körfuboltann þegar hann var yngri.

,,Ég var ekki aðdáandi fótbolta þegar ég var krakki. Ég var í körfubolta og hélt að það yrði líf mitt," sagði Cambiasso.

,,Ég faldi mig í bíl fyrir utan æfingasvæðið í fótboltanum því ég vildi ekki að fólk myndi biðja mig um að spila. Fjölskylda mín sagði mér meira að segja að spila körfubolta. Fjölskyldan kunni ekki við andrúmsloftið í fótboltanum og sögðu að það væri mengað."

,,Ég byrjaði að æfa fótbolta með Argentinos Juniors og þeir báðu mig um að hætta í körfubolta. Leikirnir voru spilaðir á sunnudögum líkt og í körfuboltanum og ég valdi fótbolta þó að fólk hafi sagt að það væri slæmt val. Það var rétt hjá þeim á þeim tíma því þá var ég betri í körfubolta en fótbolta."

Athugasemdir
banner
banner
banner