Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 22. september 2014 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Ipswich lagði Wigan
Luke Hyam skoraði fyrsta mark leiksins.
Luke Hyam skoraði fyrsta mark leiksins.
Mynd: Getty Images
Wigan 1 - 2 Ipswich
0-1 Luke Hyam ('20)
0-2 Conor Sammon ('63)
1-2 Martyn Waghorn ('82)

Wigan Athletic fékk Ipswich Town í heimsókn í lokaleik áttundu umferðar Championship deildarinnar.

Heimamenn héldu boltanum vel innan liðsins og áttu mörg skot en nýtingin var ekki upp á marga fiska.

Luke Hyam kom Ipswich yfir í fyrri hálfleik og bætti Conor Sammon öðru marki við í síðari hálfleik áður en varamaðurinn Martyn Waghorn minnkaði muninn fyrir heimamenn á 82. mínútu.

Meira var ekki skorað og er Wigan í neðri hluta deildarinnar með 8 stig en Ipswich er með 14 stig í 7. sæti, einu stigi frá umspilssvæðinu.
Athugasemdir
banner
banner