Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 22. september 2014 14:40
Magnús Már Einarsson
Debuchy frá í þrjá mánuði
Mynd: Getty Images
Mathieu Debuchy, bakvörður Arsenal, verður frá keppni í þrjá mánuði vegna meiðsla á ökkla.

Debuchy meiddist gegn Manchester City um þarsíðustu helgi og þurfti að fara í aðgerð.

Calum Chambers á að fylla skarð Debuchy en hann kom til Arsenal frá Southampton á 16 milljónir punda í sumar.

Chambers var einnig meiddur gegn Dortmund í síðustu viku en þá var hinn 19 ára gamli Hector Bellerin í bakverðinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner