„Við spiluðum nokkuð flottan leik og unnum að lokum sannfærandi sigur,“ sagði Hlynur Svan Eiríksson eftir 3-1 sigur Breiðabliks á ÍA í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar kvenna.
„Við ætluðum að nýta allan völlin, fara upp vængina og reyna að fylla boxið af leikmönnum. Við komum boltanum einungis þrisvar yfir línuna. Ásta varði oft vel frá okkur en þrjú mörk í leik verður að teljast fínt.“
Úrslit annara leikja þýða að Breiðablik á ekki lengur séns á að ná Stjörnunni að stigum í toppsætinu en ekkert lið getur heldur skákað Breiðabliki í því öðru. Því fengu þær silfurpening um hálsinn að leik loknum.
„Við ætluðum okkur að reyna að sigra deildina fyrir tímabilið en það gekk ekki. Engu að síður vorum við í toppbaráttunni allan tímann og það hefur gengið eftir. Við fengum 40 stig og það er langt síðan Breiðablik fékk 40 stig síðast. Við getum endað tímabilið vel út í Vestmannaeyjum og lokið leik með 43 stig sem hefur aldrei gerst áður.“
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir