Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. september 2014 15:34
Magnús Már Einarsson
Mata biðst afsökunar á tapinu gegn Leicester
Mynd: Getty Images
Juan Mata hefur beðið stuðningsmenn Manchester United afsökunar á 5-3 tapi liðsins gegn Leicester um helgina en United missti niður 3-1 forystu í leiknum.

,,Eftir að hafa beðið í heila viku eftir leiknum gat ég ekki ímyndað mér að sunnudagurinn yrði svona," sagði Mata.

,,Leiðin í rútunni til baka til Manchester virtist vera mjög löng. Ég var alltaf að hugsa um hvernig við töpuðum leik sem við vorum búnir að stjórna."

,,Það er mjög erfitt að skora þrjú mörk á útivelli og koma til baka án stiga. Á leiðinni til Manchester hugsaði ég hvað gerðist og ég var svo vonsvikinn yfir að bregðast þeim sem mættu á völlinn."

,,Í hreinskilni sagt vil ég biðja stuðningsmenn okkar afsökunar á að helgin hafi endað svona illa."

Athugasemdir
banner
banner
banner