Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. september 2014 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Rooney: Erfitt að kyngja þessu tapi
Rooney var skiljanlega svekktur eftir tapið.
Rooney var skiljanlega svekktur eftir tapið.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, framherji Manchester United, viðurkennir að það sé erfitt að kyngja 5-3 tapi liðsins gegn Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í gær.

United komst í 3-1 í leiknum en endaði á að tapa 5-3 eftir ótrúlegan síðasta hálftíma í leiknum.

,,Þetta er virkilega svekkjandi. Að komast í 3-1 og tapa leiknum, það er erfitt að kyngja því," sagði Rooney.

,,Við hefðum átt að gera betur sem lið og klára leikinn. Við gerðum mistök og gerðum ekki nóg til að koma í veg fyrir mörkin þeirra."

,,Við spiluðum frábærlega á köflum í þessum leik, skoruðum frábær mörk en fengum á okkur klaufaleg mörk. Við vitum að við verðum að gera betur."

Athugasemdir
banner
banner