Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. september 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Alli ósáttur við FIFA 18 - Ætlar ekki að spila sjálfum sér
Mynd: Getty Images
Dele Alli, leikmaður Tottenham, er ósáttur með einkunnina sem hann fær í FIFA 18 tölvuleiknum sem kemur út í næstu viku.

Alli er með 84 í einkunn eins og leikmenn eins og Saido Mane og Sami Khedira.

Þrátt fyrir að vera á lista yfir 100 bestu leikmennina í leiknum þá er Alli ekki sáttur með einkunnina sína.

„Ég hreinskilni sagt held ég að ég muni ekki nota sjálfan mig í leiknum því að mér finnst einkunnin mín ekki vera mjög góð," sagði Alli.

„Ég ætla að neita að spila sjálfum mér þangað til að þetta verður aðeins raunhæfara!"
Athugasemdir
banner
banner
banner