Komið hefur verið þeim skilaboðum til stuðningsmanna Liverpool og Manchester United að aukin löggæsla verði í Moskvu í næstu viku.
Bæði lið eiga Meistaradeildarleiki í rússnesku höfuðborginni og munu samtals 2 þúsund stuðningsmenn ferðast frá Englandi vegna leikjana.
Bæði lið eiga Meistaradeildarleiki í rússnesku höfuðborginni og munu samtals 2 þúsund stuðningsmenn ferðast frá Englandi vegna leikjana.
Liverpool mætir Spartak Moskvu á þriðjudaginn og United heimsækir CSKA Moskvu degi síðar.
United hefur ráðlagt stuðningsmönnum sínum um að klæðast ekki litum félagsins og ganga ekki einir um Moskvu.
Liverpool gerði jafntefli við Sevilla í fyrstu umferð síns riðils á meðan United vann Basel á Old Trafford.
Slagsmál brutust út milli rússneskra fótboltabullna og enskra í Marseille á EM í fyrra.
Athugasemdir