Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 22. september 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Forseti Spal vonar að sínir menn tapi ekki of stórt um helgina
Mynd: Getty Images
Spal eru nýliðar í ítölsku efstu deildinni og fá Napoli í heimsókn á laugardaginn.

Napoli hefur byrjað tímabilið afar vel og er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir á meðan Spal hefur tapað þremur leikjum í röð og er með fjögur stig.

Napoli er búið að skora 19 mörk á tímabilinu, eða næstum 4 í hverjum leik, og lagði nýliða Benevento að velli með sex mörkum gegn engu um síðustu helgi.

„Ég vona að strákarnir geri sitt besta og fái ekki alltof mörg mörk á sig," sagði Walter Mattioli, forseti Spal.

„Því miður er of mikill gæðamunur á bestu liðunum og þeim verstu."

Mattioli segir samband sitt við Aurelio De Laurentiis, forseta Napoli, þó vera mjög gott.

„Aurelio er mjög vinalegur og það er mjög gott samband á milli félaganna. Ég býst við að Napoli muni berjast við Juve um titilinn í ár."
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 26 5 1 77 17 +60 83
2 Milan 32 21 6 5 63 37 +26 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 32 16 11 5 45 25 +20 59
5 Roma 31 16 7 8 56 35 +21 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner