fös 22. september 2017 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Bayern missteig sig
Mynd: Getty Images
Bayern 2 - 2 Wolfsburg
1-0 Robert Lewandowski ('33 , víti)
2-0 Arjen Robben ('43 )
2-1 Maximilian Arnold ('56 )
2-2 Daniel Didavi ('83 )

Bayern München missteig sig á þessu ágæta föstudagskvöldi. Þeir fengu Wolsburg í heimsókn í þýsku úrvalsdeildinni.

Bayern gat tekið toppsætið tímabundið af erkifjendum sínum í Dortmund með sigri, en það tókst ekki alveg hjá þeim.

Robert Lewandowski kom Bayern yfir í kvöld úr vítaspyrnu og hinn hollenski Arjen Robben bætti við öðru marki áður en fyrri hálfleikurinn kláraðist. Bayern var 2-0 yfir í hálfleik og á þeim tímapunkti héldu flestir að þeir myndu sigla öruggum sigri í höfn.

Gestirnir í Wolfsburg sýndu hins vegar karakter og þeir náðu að jafn. Daniel Didavi gerði jöfnunarmarkið á 83. mínútu.

Bayern er með 13 stig, rétt eins og Dortmund, en Dortmund á leik til góða. Wolfsburg hefur 11 stig í sjötta sæti.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner