Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. september 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Bayern og Dortmund eiga erfiða heimaleiki
Mynd: Getty Images
Hoffenheim hefur byrjað tímabilið vel og er tveimur stigum frá toppliði Dortmund.
Hoffenheim hefur byrjað tímabilið vel og er tveimur stigum frá toppliði Dortmund.
Mynd: Getty Images
Helgin í þýska boltanum er spennandi, enda er Borussia Dortmund með tveggja stiga forystu á Bayern München eftir fimm umferðir.

Bæjarar eiga fyrsta leik helgarinnar á heimavelli gegn Wolfsburg. Liðin mætast í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Hoffenheim, sem er meðal toppliðanna eftir 2-0 sigur á Bayern, fær Schalke í heimsókn á meðan Red Bull Leipzig tekur á móti Eintracht Frankfurt.

Aron Jóhannsson hefur ekki verið í hóp hjá Werder Bremen síðan í ágúst, en félagið fær Freiburg í heimsókn á laugardaginn, á meðan Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg heimsækja Stuttgart.

Topplið Dortmund mætir Borussia Mönchengladbach í síðasta leik laugardagsins.

Hannover mætir Köln og Bayer Leverkusen fær Hamburger í heimsókn á sunnudeginum.

Föstudagur:
18:30 Bayern München - Wolfsburg (Stöð 2 Sport)

Laugardagur:
13:30 Mainz - Hertha Berlin
13:30 Hoffenheim - Schalke
13:30 RB Leipzig - Eintracht Frankfurt
13:30 Werder Bremen - Freiburg
13:30 Stuttgart - Augsburg
16:30 Dortmund - B.M'Gladbach (Stöð 2 Sport 3)

Sunnudagur:
13:30 Hannover - Köln
16:00 Bayer Leverkusen - Hamburger
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner