Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. september 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Varnarvandræði hjá Stoke
Bruno Martins Indi er eini miðvörðurinn sem er klár í leikinn á morgun.
Bruno Martins Indi er eini miðvörðurinn sem er klár í leikinn á morgun.
Mynd: Getty Images
Mark Hughes, stjóri Stoke, er í vandræðum í vörninni fyrir leikinn gegn Chelsea á morgun.

Ryan Shawcross og Geoff Cameron eru báðir meiddir auk þess sem Kurt Zouma má ekki spila á morgun þar sem hann er í láni frá Chelsea.

Þá er Kevin Wimmer mjög tæpur fyrir leikinn á morgun vegna meiðsla aftan í læri.

Bruno Martins Indi er eini miðvörðurinn sem er klár í slaginn hjá Stoke fyrir leikinn á morgun.

Hughes hefur spilað með þrjá miðverði hingað til á tímabilinu en ef hann gerir það á morgun þá gætu bakverðirnir Glen Johnson og Erik Pieters leikið við hlið Martins Indi í vörninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner