Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   þri 22. október 2013 13:24
Magnús Már Einarsson
Landsliðshópurinn gegn Serbum: Ólína ekki með
Kvenaboltinn
Ólína er fjarverandi.
Ólína er fjarverandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti nú rétt í þessu landsliðshópinn sem mætir Serbíu í undankeppni HM þann 31. október næstkomandi.

Ólína Viðarsdóttir er ekki leikfær vegna meiðsla og þá er Katrín Jónsdóttir búin að leggja skóna á hilluna sem og Greta Mjöll Samúelsdóttir.

Freyr og Ásmundur Haraldsson aðstoðarþjálfari munu fara á undan íslenska liðinu út til að sjá leik Serbíu og Danmerkur á laugardag.

Tveir leikmenn í hópnum hafa ekki leikið landsleiki áður en það eru Anna Björk Kristjánsdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir.

Íslenski hópurinn:

Markverðir:
Þóra B. Helgadóttir (Malmö)
Sandra Sigurðardóttir (Stjarnan)
Guðbjörg Gunnarsdóttir (Avaldsnes)

Aðrir leikmenn:
Dóra María Lárusdóttir (Valur)
Margrét Lára Viðarsdóttir (Kristianstads)
Hólmfríður Magnúsdóttir (Avaldsnes)
Sara Björk Gunnarsdóttir (Malmö)
Katrín Ómarsdóttir (Liverpool)
Rakel Hönnudóttir (Breiðablik)
Sif Atladóttir (Kristinstad)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Pitea)
Fanndís Friðriksdóttir (Kolbotn)
Dagný Brynjarsdóttir (Valur)
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Glódís Perla Viggósdóttir (Stjarnan)
Þórunn Helga Jónsdóttir (Avaldsnes)
Elísa Viðarsdóttir (ÍBV)
Anna María Baldursdóttir (Stjarnan)
Anna Björk Kristjánsdóttir (Stjarnan)
Guðmunda Brynja Óladóttir (Selfoss)
Slapp
banner