Alan Pardew, stjóri Newcastle, segir að lífið hafi verið erfitt í byrjun tímabils.
Pardew hefur verið undir pressu eftir slaka byrjun Newcastle en liðið náði loksins að landa sínum fyrsta sigri gegn Leicester um helgina.
Pardew hefur verið undir pressu eftir slaka byrjun Newcastle en liðið náði loksins að landa sínum fyrsta sigri gegn Leicester um helgina.
,,Ég ætla ekki að reyna að segja að þetta hafi ekki verið erfitt," sagði Pardew.
,,Það hefur verið rosalega erfitt að horfa í augun á stuðningsmönnum okkar og ég hef hitt þá á götunum þar sem ég hef hlustað á pirring og kvartanir frá þeim."
,,Það er sanngjarnt, ég get ekki sagt annað. Við ættum að vinna fleiri leiki en við höfum gert hingað til."
Athugasemdir