Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. október 2014 10:00
Magnús Már Einarsson
Rodgers: Tímaspursmál hvenær Balotelli fer að skora
,,Ég hef trú á þér
,,Ég hef trú á þér"
Mynd: Getty Images
,,Það er bara tímaspursmál um það hvenær hann fer að skora," segir Brendan Rodgers stjóri Liverpool um ítalska framherjann Mario Balotelli.

Balotelli hefur einungis skorað eitt mark í níu leikjum með Liverpool en liðið mætir Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld.

,,Hann skorar mörk í stórleikjum. Ef hann verður valinn í liðið þá mun hann mæta ákveðinn til leiks," sagði Rodgers.

Balotelli átti afleitan dag gegn QPR um helgina en hann skaut meðal annars yfir fyrir opnu marki.

,,Ég benti honum á að hann komst í færi því hann var á réttum stað en hann klúðraði. Svo lengi sem hann er á þessum stöðum og á möguleika á að skora þá er ég vongóður um að það muni gerast."
Athugasemdir
banner
banner