Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. október 2014 21:02
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Vissum að það er erfitt að koma á Anfield
Ronaldo í leiknum í kvöld.
Ronaldo í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
,,Þetta var sérstakt augnablik, mitt fyrsta mark á Anfield. Ég er mjög ánægður. Þetta er ótrúlegt," sagði Cristiano Ronaldo eftir 3-0 sigur Real Madrid á Liverpool í kvöld.

,,Við vissum að það er erfitt að koma á Anfield en við vorum stórkostlegir fyrstu 45 mínúturnar og verðskulduðum að vinna."

,,Getum við varið titilinn? Af hverju ekki? Við tökum eitt skref í einu en við ætlum að reyna. Við vitum að þetta verður erfitt en við erum jákvæðir. Þetta er mögulegt."

Ronaldo er núna kominn með 70 mörk í Meistaradeildinni en hann er einu marki frá markameti Raúl.

,,Ég hef ekki áhyggjur af markametinu í Meistaradeildinni. Ég veit að ég mun bæta það," sagði Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner