Tveir leikmenn úr 2. deildarliði Aftureldingar halda til Svíþjóðar um næstu helgi þar sem þeir verða til reynslu hjá Hammarby.
Um er að ræða sóknarmanninn Elvar Inga Vignisson sem skoraði 9 mörk í 22 deildarleikjum fyrir Aftureldingu á liðnu tímabili og Birki Þór Guðmundsson sem lék fimm leiki í 2. deildinni.
Um er að ræða sóknarmanninn Elvar Inga Vignisson sem skoraði 9 mörk í 22 deildarleikjum fyrir Aftureldingu á liðnu tímabili og Birki Þór Guðmundsson sem lék fimm leiki í 2. deildinni.
Elvar er fæddur 1995 og hefur einnig verið orðaður við lið í Pepsi-deildinni.
Birki er miðjumaður fæddur 1997 en hann hefur leikið fyrir U17 landslið Íslands.
Hammarby trónir á toppi sænsku B-deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.
Athugasemdir