lau 22. október 2016 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Belgía: Sverrir Ingi og Ari Freyr töpuðu fyrir toppliðinu
Mynd: Getty Images
Waregem 2 - 0 Lokeren
1-0 A. Cordaro ('16)
2-0 L. Lerager ('74)

Sverrir Ingi Ingason og Ari Freyr Skúlason léku allan leikinn er Lokeren tapaði fyrir Waregem, toppliði belgísku efstu deildarinnar.

Leikurinn var frekar jafn en heimamenn nýttu færin sín betur og fóru kátir af velli með þrjú stig að leikslokum.

Íslendingalið Lokeren er með 10 stig eftir 11 umferðir, þremur stigum fyrir ofan botnsætið. Waregem er á toppinum með 23 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner