Liverpool tekur á móti West Brom í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag, en leikurinn hefst klukkan 16:30 og byrjunarliðin eru tilbúin.
Liverpool, sem hefur 17 stig í fjórða sæti deildarinnar, er ósigrað í síðustu átta leikjum og hefur unnið sex af þeim. West Brom hefur átta stig í 12. sæti og er taplaust í fjórum leikjum í röð.
Liverpool, sem hefur 17 stig í fjórða sæti deildarinnar, er ósigrað í síðustu átta leikjum og hefur unnið sex af þeim. West Brom hefur átta stig í 12. sæti og er taplaust í fjórum leikjum í röð.
Hjá heimamönnum í Liverpool er ein breyting gerð frá 0-0 jafnteflinu gegn Manchester United á mánudaginn, en Adam Lallana byrjar á kostnað Daniel Sturridge.
West Brom gerir sömuleiðis eina breytingu, en Jonas Olsson kemur inn fyrir Johnny Evans, sem er í banni í leiknum í dag.
Byrjunarlið Liverppol: Karius, Clyne, Matip, Lovren, Milner, Can, Henderson, Lallana, Mane, Firmino, Coutinho.
Byrjunarlið West Brom: Foster, Dawson, McAuley, Olsson, Nyom, Fletcher, Yacob, Phillips, Chadli, McClean, Rondon.
The #LFC matchday squad for today's meeting with @WBA in full #LIVWBA pic.twitter.com/NNdshX9sdl
— Liverpool FC (@LFC) October 22, 2016
Albion team v @LFC: Foster; Dawson, McAuley, Olsson, Nyom; Phillips, Yacob, Fletcher (c), McClean; Chadli; Rondon #WBA pic.twitter.com/BvkvgbRAqO
— West Bromwich Albion (@WBA) October 22, 2016
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir