Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. október 2016 18:24
Ívan Guðjón Baldursson
England: Liverpool jafnar Arsenal á toppnum
Mynd: Getty Images
Liverpool 2 - 1 West Brom
1-0 Sadio Mane ('20)
2-0 Philippe Coutinho ('35)
2-1 Gareth McAuley ('81)

Liverpool er komið á topp ensku Úrvalsdeildarinnar eftir sigur á West Bromwich Albion í dag.

Liverpool var við stjórn frá upphafi til enda en gestirnir náðu þó að opna leikinn með marki á lokakaflanum. Þeir komust þó aldrei nálægt því að jafna gegn ferskum heimamönnum sem hefðu hæglega getað unnið með meiri mun.

Sadio Mane og Philippe Coutinho gerðu mörk heimamanna í fyrri hálfleik og minnkaði Gareth McAuley muninn fyrir gestina á 81. mínútu.

Liverpool er í öðru sæti ensku deildarinnar á markatölu, en Arsenal er á toppnum með jafn mörg stig. Manchester City fær Southampton í heimsókn á morgun og getur komið sér á toppinn með sigri eða jafntefli.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner