Jürgen Klopp er ánægður með sigur Liverpool gegn West Brom sem kemur liðinu upp að hlið Arsenal á toppi ensku Úrvalsdeildarinnar.
West Brom minnkaði muninn á 81. mínútu og segir Klopp að það hefði verið algjör brandari að fá jöfnunarmark á sig miðað við gang leiksins.
West Brom minnkaði muninn á 81. mínútu og segir Klopp að það hefði verið algjör brandari að fá jöfnunarmark á sig miðað við gang leiksins.
„Ég er mjög ánægður með frammistöðu liðsins. Það er erfitt að spila við West Brom útaf háu boltunum og svo eru þeir hættulegir í föstum leikatriðum," sagði Klopp.
„Það hefði verið brandari að gera jafntefli, við spiluðum ótrúlega vel. Þetta var mjög góð frammistaða gegn skipulögðu liði. Við hleyptum þeim aldrei inn í leikinn.
„Þeir eru svo góðir í hornspyrnum. Mér leið eins og þeir væru með 15 menn í vítateignum."
Athugasemdir