„Við vissum að við yrðum að halda í við þá, þeir eru frábært lið með mikil gæði á boltanum," sagði miðjumaðurinn Jack Wilshere eftir markalaust jafntefli Bournemouth og Tottenham í dag.
„Við vissum að ef við myndum spila vel undir pressu þá myndum við gera vel," sagði enski miðjumaðurinn ennfremur.
„Við vissum að ef við myndum spila vel undir pressu þá myndum við gera vel," sagði enski miðjumaðurinn ennfremur.
Wilshere náði þeim áfanga í dag að klára heilan fótboltaleik í fyrsta skiptið frá 2014, en hann hefur undanfarin ár verið að glíma við erfið meiðsli. Hann kveðst ánægður með það hvernig gengið hefur hjá Bournemouth.
„Mér líður betur og betur í hverri einustu viku. Stjórinn hefur reynst mér vel og mér líður eins og ég sé að komast í betra form. Vonandi get ég gert meira fyrir liðið."
Athugasemdir