Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. október 2017 14:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carragher: Pickford hafði minna að gera hjá Sunderland
Mynd: Getty Images
Það er ekki hægt að sakast neitt við Jordan Pickford, markvörð Everton, í 5-2 tapinu gegn Arsenal í dag. Hann var líklega hvað skástur af leikmönnum Everton í leiknum.

Pickford var keyptur til Everton í sumar frá Sunderland fyrir 30 milljónir punda og hann hefur hingað til staðið sig ágætlega.

Pickford hafði nóg að gera á síðasta tímabili þegar Sunderland féll úr ensku úrvalsdeildinni, en hann hefur ef eitthvað er meira að gera núna sem markvörður Everton. Þetta segir Jamie Carrager, sérfræðingur Sky Sports og fyrrum leikmaður Liverpool.

„Pickford hafði minna að gera hjá Sunderland," ritar Carragher á Twitter síðu sinni í dag.

Everton hefur byrjað þetta tímabil mjög illa og það kæmi ekki á óvart ef Ronald Koeman myndi fá reisupassann á næstu dögum.



Athugasemdir
banner
banner