Ipswich Town 0 - 1 Norwich
0-1 James Maddison ('60 )
0-1 James Maddison ('60 )
Það var einn leikur í Championship-deildinni á Englandi í dag. Nágrannarnir í Ipswich og Norwich áttust við.
Norwich hefur haft gott tak á Ipswich upp á síðkastið, en það eru rúm átta ár síðan Ipswich vann síðast í baráttu þessara liða.
Ipswich þarf að bíða eitthvað lengur eftir sigrinum þar sem Norwich knúði fram sigur í þessum leik. Það var aðeins eitt mark skorað og það gerði James Maddison fyrir Norwich eftir klukkutíma.
Norwich hoppar núna upp í sjötta sæti Championship-deildarinnar, Ipswich er í 11. sætinu eftir þrjá tapleiki í röð.
Athugasemdir