Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. október 2017 14:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Diego fagnaði með víkingaklappi
Mynd: Úr einkasafni
Diego Jóhannesson var á skotskónum þegar Real Oviedo vann 2-0 sigur á Cordóba í spænsku B-deildinni í dag.

Hann kom inn á sem varamaður þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af leiknum og hann náði að setja sitt mark á leikinn.

Hann gerði seinna mark Oviedo í uppbótartíma.

Diego, sem á íslenskan föður, fagnaði að íslenskum sið. Hann hljóp upp að stuðningsmönnum og tók víkingaklappið.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu.



Athugasemdir
banner
banner
banner