Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. október 2017 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Gerard Deulofeu: Markið mitt var löglegt
Malaga menn mótmæla marki Deulofeu.
Malaga menn mótmæla marki Deulofeu.
Mynd: Getty Images
Gerard Deulofeu sem skoraði mark sem átti ekki að standa í 2-0 sigri Barcelona á Malaga í gærkvöldi segist ekki hafa séð neitt athugavert við markið sem hann skoraði.

„Ég sá ekkert athugavert við þetta, ég hef ekki enn séð endursýningu af þessu atviki en fyrir mér þá var þetta löglegt," sagði Deulofeu.

Hernandez leikmaður Malaga var að vonum pirraður þegar hann var spurður út í atvikið.

„Ég get skilið það að þeir segi að hann hafi ekki farið út af en þetta er fáránlegt, boltinn var kominn hálfan meter frá endalínunni."

Sjá einnig: Mynd: Kolólöglegt mark Barcelona
Athugasemdir
banner
banner