sun 22. október 2017 17:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Henderson kemur Lovren til varnar
Mynd: Getty Images
„Það er erfitt að koma og reyna að segja eitthvað okkur til varnar. Þetta var ekki nægilega gott. Tottenham átti sigurinn skilið. Við erum frábært lið, en við þurfum að vinna í nokkrum hlutum," sagði Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, eftir 4-1 tap gegn Tottenham.

„Við byrjuðum ekki vel. Við þurfum að vera tilbúnir fyrir næsta leik," sagði Henderson enn fremur.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, tók Dejan Lovren af velli eftir hálftíma, en Lovren hafði gert stór mistök í leiknum og ekki litið vel út.

„Ég veit að Dejan Lovren kom af velli, en hver sem er af okkur hefði getað farið út af. Við komumst aftur inn í leikinn, en fengum svo lélegt mark á okkur sem gerði út um hann."

„Þetta var vonbrigðardagur og ég er mjög svekktur, en ég hef trú á því að við getum gert betur næst."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner