sun 22. október 2017 17:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kane: Vildum byrja vel og gleðja stuðningsmennina
Mynd: Getty Images
Harry Kane, sóknarmaður Tottenham, var að vonum sáttur eftir öruggan 4-1 sigur á Liverpool á Wembley í dag.

Eftir að hafa ekkert skorað í ágúst hefur Kane stimplað sig inn. Hann skoraði tvö mörk í dag og fór illa með varnarmenn Liverpool.

„Þetta var ótrúlegt, við vildum byrja vel og gleðja stuðningsmennina, sem við svo gerðum," sagði Kane hress eftir þennan þægilega sigur á frekar slöppu Liverpool liði.

„Mér fannst við spila mjög vel. Markið sem þeir náðu að skora kom gegn gangi leiksins."

„Við vorum að pressa á þá hefðum getað verið komnir 3, eða 4-0 yfir snemma," sagði Kane að lokum.
Athugasemdir
banner
banner