Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. október 2017 16:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp fékk nóg af Lovren - Tók hann af velli eftir hálftíma
Mynd: Getty Images
Það hefur margoft verið hraunað yfir varnarmanninn Dejan Lovren á Twitter. Hann fékk útreið á samfélagsmiðlinum eftir frammistöðu sína í leiknum gegn Tottenham sem nú stendur yfir.

Tottenham leiðir 3-1, en seinni hálfleikurinn var að hefjast. Hægt er að fylgjast með gangi mála á forsíðu Fótbolta.net.

Mörkin sem Tottenham voru heldur auðveld og varnarmenn Liverpool voru út á þekju eins og oft áður.

Í öðru marki Tottenham gerði Lovren stór mistök og Twitter fór á hliðina, stuðningsmenn Liverpool voru brjálaðir.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var heldur ekki sáttur. Hann var búinn að fá nóg og tók Lovren út af og setti Alex Oxlade-Chamberlain inn á. Sjálfstraustið hjá Lovren í molum þessa stundina.



























Athugasemdir
banner
banner