Samúel Kári Friðjónsson kom inn af bekknum í fyrri hálfleik í 7-1 sigri Vålerenga á Viking.
Samúel skoraði fimmta mark leiksins snemma í síðari hálfleik og er hægt að sjá myndband af því hér fyrir neðan.
Samúel skoraði fimmta mark leiksins snemma í síðari hálfleik og er hægt að sjá myndband af því hér fyrir neðan.
Samúel fékk þá boltann í vítateig Viking, hélt honum á lofti og kláraði dæmið með frábærri bakfallsspyrnu sem fór yfir markvörðinn og í netið.
Samúel og félagar eru í sjöunda sæti norsku deildarinnar, átta stigum frá evrópudeildarsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Athugasemdir