Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 22. október 2017 17:00
Mist Rúnarsdóttir
Znojmo
Myndir: Innlifun Freysa á hliðarhlínunni
Freyr fagnaði sigrinum á Þýskalandi innilega enda um magnað afrek að ræða
Freyr fagnaði sigrinum á Þýskalandi innilega enda um magnað afrek að ræða
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Það voru miklar og sterkar tilfinningar á íslenska bekknum í leiknum sögulega þegar Ísland sigraði Þýskaland á föstudag.

Spennan var magnþrungin á lokamínútum leiksins. Sérstaklega eftir að þýska liðið minnkaði muninn niður í eitt mark og sótti svo stíft út leikinn.

Það var gaman að fylgjast með ástríðunni hjá landsliðsþjálfaranum Frey Alexanderssyni á hliðarlínunni. Hann tók stöðugan þátt í leiknum og öskraði sína leikmenn áfram í 90 mínútur plús.

Anna Þorsteinsdóttir, ljósmyndari Fótbolta.net, náði þessum skemmtilegu myndum af Frey á lokamínútum leiksins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner