Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. október 2017 10:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar fór reiður af æfingu PSG - Vildi vera lengur
Mynd: Getty Images
Neymar virðist ekki vera að eignast marga nýja vini í París.

Eins og frægt er orðið eru hann og Edinson Cavani engir vinir en samkvæmt franska blaðinu L'Equipe er Neymar núna reiður út í knattspyrnustjórann Unai Emery.

Neymar ku ekki vera sáttur með síðustu æfingu hjá Spánverjanum. Á æfingunni ákvað Emery að skipta hópnum í tvennt og gefa þeim sem spiluðu í Meistaradeildinni hvíld, hann leyfði þeim að fara snemma.

Neymar vildi halda áfram að æfa og hann krafðist þess að leikmennirnir myndu ekki fara neitt.

Emery stóð á sínu og Neymar varð mjög reiður. Á leiðinni af æfingasvæðinu kastaði hann bolta í vegg.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Neymar lendir í rifrildi á æfingu. Áður en hann yfirgaf Barcelona kom honum saman við Nelson Semedo, sem var þá nýkominn til Börsunga.
Athugasemdir
banner
banner
banner