Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. október 2017 14:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil: Sýnum alltaf gæði okkar á æfingum
Mynd: Getty Images
„Við erum mjög ánægðir með að vinna leikinn," sagði Mesut Özil eftir 5-2 sigur Arsenal á Everton í dag.

Özil kom inn í byrjunarlið Arsenal og sýndi hvað hann getur verið góður í fótbolta; hann var einn af bestu mönnum vallarins.

„Við vissum að þetta yrði erfitt, en við sýndum karakter. Við höfðum trú á okkur sjálfum," sagði Özil.

Þetta var fyrsti leikurinn á tímabilinu þar sem Özil byrjar með Alexis Sanchez og Alexandre Lacazette.

„Við sýnum alltaf gæði okkar á æfingum. Í dag sáuð þið það á vellinum. Við sýndum gæði okkar og við skoruðum allir."

Per Mertesacker hrósaði Özil eftir leik.

„Við byrjuðum mjög vel og það var mjög erfitt að lenda 1-0 undir.
Við héldum áfram og fórum eftir okkar plani og sköpuðum mörg færi í fyrri hálfleiknum, en náðum ekki að nýta þau almennilega. Við
gerðum betur í seinni hálfleiknum. Það var mikilvægt fyrir okkur að hafa Mesut Özil í dag,"
sagði Mertesacker.
Athugasemdir
banner
banner
banner