Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 22. nóvember 2014 12:30
Alexander Freyr Tamimi
Alonso: Ronaldo sá besti sem ég hef spilað með
Xabi Alonso hrósar Ronaldo.
Xabi Alonso hrósar Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Xabi Alonso, miðjumaður Bayern Munchen, segir að Cristiano Ronaldo sé besti leikmaðurinn sem hann hefur spilað með.

Alonso var liðsfélagi Portúgalans hjá Real Madrid í fimm ár áður en hann hélt til Bayern í sumar, en fjöldi núverandi liðsfélaga hans urðu heimsmeistarar með Þýskalandi í sumar.

,,Ég sagði það nýlega að ef Manuel Neuer eða annar þýskur leikmaður myndu vinna Gullknöttinn, þá væri það sanngjarnt því þeir unnu HM,” sagði Alonso við Daily Mail.

,,En ef Ronaldo vinnur aftur, þá væri það líka sanngjarnt miðað við tímabilið hans, hann vann Meistaradeildina.”

,,Hann er besti leikmaður sem ég hef spilað með.”

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner