Það er nokkuð ljóst að Mario Balotelli verður ekki með Liverpool á morgun þegar liðið mætir Crystal Palace í London.
Balotelli er í þessum skrifuðu orðum staddur meðal áhorfenda á boxbardaga í London þar sem Nathan Cleverly og Tony Bellew eru að fara að mætast.
Balotelli er í þessum skrifuðu orðum staddur meðal áhorfenda á boxbardaga í London þar sem Nathan Cleverly og Tony Bellew eru að fara að mætast.
Balotelli var að glíma við meiðsli aftan í læri eftir síðasta landsliðsverkefni með Ítalíu og verður væntanlega ekki klár á morgun.
Góð tíðindi eða slæm fyrir Liverpool? Balotelli hefur engan veginn fundið sig á tímabilinu en Liverpool er sem stendur í ellefta sæti.
Athugasemdir