Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. nóvember 2014 10:37
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Mbl.is 
Birkir Bjarna spilar ekki næstu leiki Pescara
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er kominn á meiðslalista og spilar ekki næstu leiki Pescara í ítölsku B-deildinni vegna meiðsla á ökkla.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu en þar segist Birkir vonast til að vera ekki lengur en 1-2 vikur frá keppni.

Hann missir af leik gegn Modena í dag og öðrum deildarleik til viðbótar en vonast til að verða klár í byrjun desember.

Pescara er í tólfta sæti af 22 liðum í ítölsku B-deildinni. Sex stig eru upp í umspilssæti í deildinni en aðeins þrjú stig niður í beint fall svo baráttan er jöfn og spennandi. Auðveldlega getur brugðið til beggja vona.
Athugasemdir
banner
banner
banner