Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. nóvember 2014 21:37
Magnús Már Einarsson
Heimild: Eyjamenn.com 
Brynjar Gauti á leið í Stjörnuna
Brynjar Gauti í leik með ÍBV.
Brynjar Gauti í leik með ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaður ÍBV, er á leið í Stjörnuna en Eyjamenn.com greina frá þessu í kvöld.

Brynjar hefur leikið með ÍBV undanfarin fjögur tímabil en í haust var gefið út að hann myndi líklega færa sig um set.

Þessi 22 ára gamli leikmaður stefndi út í atvinnumennsku en nú er útlit fyrir að hann gangi til liðs við Íslandsmeistarana og möguleiki er á að hann skrifi undir á morgun.

,,Samningur ÍBV við Brynjar rennur út um áramótin og hefur hann ákveðið að halda á önnur mið. Mun hann hafa tilkynnt leikmönnum og forráðamönnum liðsins í dag að hann hafi náð saman við Stjörnuna," segir á Eyjamenn.com

,,Vitað er að ÍBV reyndi að framlengja samning sinn við Brynjar en allt kom fyrir ekki, líklegt er að gengið verði frá samningum milli Brynjars og Stjörnunar á morgun (sunnudag)."

,,Stuðningsmenn ÍBV þakka Brynjari fyrir frábær ár með félaginu, vertu velkominn aftur þegar þú ert tilbúinn til að vinna með okkur titilinn."

Athugasemdir
banner
banner
banner