Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 22. nóvember 2014 09:30
Alexander Freyr Tamimi
Daily Mail: Liverpool vill fá Berahino í janúar
Berahino er sagður á óskalista Liverpool.
Berahino er sagður á óskalista Liverpool.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt breska dagblaðinu Daily Mail er Saido Berahino efstur á óskalista Liverpool þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Brendan Rodgers vill ólmur styrkja framlínu sína og er þessi bráðefnilegi leikmaður West Ham sagður vera efstur á óskalista hans.

Mail segir að Liverpool þyrfti að punga út 15 milljónum punda fyrir leikmanninn, en miðað við hræðilega frammistöðu Mario Balotelli á tímabilinu og endalaus meiðsli Daniel Sturridge, þá gæti það verið nauðsynlegt fyrir þá rauðklæddu að opna veskið.

Ef West Brom er tilbúið að selja Berahino, þá mun Liverpool þó hugsanlega mæta samkeppni frá Tottenham, sem einnig vill fá leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner